Matarveisla Food and Fun verður haldin í Reykjavík dagana 25. febrúar til 1. mars 2026.
Apotekið er eins og fyrri ár stoltur þátttakandi í hátíðinni og gestakokkurinn okkar í ár er verðlaunaða matreiðslustjarnan Danitza Gabriela.
Danitza er fædd í Arequipa í Perú en búsett í Madríd á Spáni. Hún rekur Manifesto 13, veitingastað sem leggur áherslu á perúísk-ítalskan fushion
sem er ótrúlega spennandi blanda sem við getum ekki beðið eftir að bjóða upp á.
Í lok ársins 2025 komst staðurinn á lista Michelin-handbókarinnar yfir nýja Bib Gourmand-veitingastaði.
Taktu dagana frá og tryggðu þér borð!
Nánari upplýsingar um seðil koma fljótlega.
Danitza Alpaca hefur byggt upp glæsilegan feril í alþjóðlegri matargerð. Hún hóf nám sitt við Háskólann í San Ignacio de Loyola og hélt áfram náminu
við Paul Bocuse-stofnunina í Lima. Í framhaldinu í starfsnám á þekktum veitingastöðum eins og Atrio á Spáni, D.O.M. í Brasilíu og Mugaritz í San Sebastián.
Þar að auki starfaði hún hjá Astrid & Gastón í Perú og stýrði eldhúsinu á Oroya í Madríd, þar sem hún blandaði saman perúvískum hefðum við nútímalegar aðferðir.
Árið 2022 hlaut Danitza verðlaunin „Food for the Spirit“ í S.Pellegrino Young Chef-keppninni á Spáni og í Portúgal, sem undirstrikar fókus hennar á kjarna og rætur
perúvískrar matargerðar. Danitza gekk til liðs við Manifesto 13 verkefnið sem yfirkokkur sumarið 2025 og í lok þess árs var veitingastaðurinn kominn á lista Michelin-handbókarinnar
yfir nýja Bib Gourmand-veitingastaði, þökk áherslu hennar á að blanda sama matargerð með ítölskum og perúskum rótum.

