Á nýju ári getum við loksins byrjað aftur með skemmtilegu kokteila workshopin okkar,
þar sem þátttakendur læra að búa til kokteila á einfaldan hátt og para kokteila með mat.
Námskeiðin eru gríðarlega vinsæl og fullkomin fyrir bæði einstaklinga og hópa.
Um námskeiðin sjá margverðlaunaðir kokteilbarþjónar Apoteksins og kenna réttu handtökin við gerð klassískra kokteila og leyniblöndurnar bak við verðlaunakokteila Apoteksins.
Smakkaðir eru kokteilar með réttum frá Apotekinu og farið yfir galdurinn að para saman kokteila og mat til að gera góða veislu enn betri.
Réttir sem við smökkum…
BLEIKJA Á SALTBLOKK FRÁ HIMALAYA
Hægelduð bleikja, yuzu mayo, trufflu mayo, stökkt quinoa, epli
ÖND&VAFFLA
Hægeldað andalæri, karamelluseruð epli, belgísk vaffla, maltsósa
KOLKRABBI
Grillaður og reyktur kolkrabbi, avókadó, íslenskir kirsuberjatómatar, sýrður laukur, chipotle may
TÍGRÍSRÆKJA
Pönnusteikt tígrisrækja, steikt hvítlauks-mayo, paprikusósa, grænbauna og avókadó purée
LAMBA RUMP STEIK
Gulrótarpurée, gulrætur, blómkál, vorlkaukur, svart-hvítlaukssósa
Námskeiðin verða haldin á fimmtudögum, milli klukkan 16 og 18, og kosta 8.900 kr. á mann.
Aldurstakmark er 20 ár.
Dagsetningar:
20. janúar
03. febrúar
17. febrúar
03. mars
17. mars
31. mars
Skráning og miðasala fer fram á tix.is á linknum hér fyrir neðan:
https://tix.is/is/event/9250/kokteil-workshop-apoteksins/
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 551-0011.